Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2017 | 14:00

Jack Nicklaus: „Ég veit ekki hversu mikið golf Tiger mun spila meira í framtíðinni“

Jack Nicklaus telur að Tiger Woods muni ekki spila mikið keppnisgolf meira í framtíðinni.

Nicklaus, sem er 18-faldur risatitilshafi, þ.e. er með 4 risatitla umfram Tiger finnst að líkamleg veiklun Tiger ásamt nýlegum persónulegum vandræðum hans hafi  sett spurningamerki við hvort hann muni aftur snúa á PGA Tour.

Hann mun eiga afar erfitt. Ég veit ekki hvort Tiger muni spila mikið golf meira.“ sagði Nicklaus.

Hann gæti komið aftur og spilað en ég held að það verði ansi erfitt fyrir hann eftir að mæna hans var spelkuð og öll vandræðin sem hann hefir átt í undanfarið.“

Hann er með fleiri vandamál í daglegu lífi sínu heldur en golfvandræði, í augnablikinu.“