Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2017 | 14:00

Fylgist m/fyrrum PGA Tour kylfingnum John Morgan fá ás … og synda að golfbolta sínum

Hvað myndirðu gera ef þú færir holu í höggi?

Myndirðu vera svo glöð/glaður að þú værir til í að stökkva í tjörn og synda eftir boltanum til að ná í golfboltann þinn?

Það er það sem fyrrum PGA Tour og Evróputúrs kylfingurinn John Morgan gerði eftir að fá ás, sem hluta af keppni sem kvikmynduð var og var 100.000 punda virði.

Hvað var vandamálið? Nú Morgan var ekki hluti af keppninni.

 

Eftir að enginn af 26 þátttakendum í Albrate Shoot-out náði að fara holu í höggi, þá tókst Morgan, golffréttaskýranda fyrir Sky Sports að reyna við par-3 170 yarda holuna í  Cumberwell Park. Og auðvitað tókst honum ætlunarverk sitt og hann fór holu í höggi.

Sjá má myndskeið af ás Morgan og síðan þegar hann stingir sér í tjörnina til að ná í bolta sinn með því að SMELLA HÉR: