Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2017 | 23:45

LPGA: Ólafía Þórunn komst g. niðurskurð!!!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, komst nú í kvöld í gegnum niðurskurð á Wallmart NW Arkansas Championship.

Á fyrstu tveimur hringjum mótsins hefir Ólafía Þórunn spilað á samtals 3 undir pari, 139 höggum (69 70).

Á 2. hring, í dag, fékk Ólafía 2 fugla og 1 skolla – spilaði jafnt og gott golf.

Niðurskurður er sem stendur miðaður við þá sem spiluðu á 1 undir pari eða betur.

Í efsta sæti er So Yeon Ryu frá S-Kóreu á samtals 16 undir pari.

Meðal þeirra sem að þessu sinni komust ekki í gegnum niðurskurð eru Caroline Hedwall, Cheyenne Woods og Paula Creamer.

Til þess að sjá stöðuna á Wallmart NW Arkansas Championship SMELLIÐ HÉR: