Links Magazine: Er lykilinn að framtíð golfsins að finna á Íslandi?
Bandaríska golftímaritið Links Magazine er eitt þeirra sem fjallað hafa um ákvörðun Golfsambands Íslands að afnema ákvæði um 18 holur úr mótareglugerðum sínum, sem nú hefur verið fylgt eftir með að keppa um KPMG-bikarinn á Íslandsmótinu í holukeppni á 13 holum í Vestmannaeyjum 23. – 25. júní nk.
Í umfjöllun Links Magazine falla stór orð í fyrirsögn, en þar spyr blaðamaður hvort lykilinn að framtíð golfleiksins sé að finna á Íslandi. „Uppátæki Golfsambands Íslands breyta venjulega litlu um það hvernig Bandaríkjamenn stunda golfið sitt, en í þessu tilviki gæti frumkvæði landsins haft mikla þýðingu fyrir framtíð golfleiksins,” skrifar greinarhöfundur.
Rætt um samstarf við USGA
Í greininni er rætt við golfvallahönnuðinn Edwin Roald, sem er upphafsmaður Why18holes.com, og Hauk Örn Birgisson forseta GSÍ, auk John Bodenhamer og Steven Edmondson frá bandaríska golfsambandinu, USGA, sem í viðtalinu lýsir áhuga á samstarfi við Edwin og GSÍ, m.a. til að laga vallarmats- og forgjafarkerfi íþróttarinnar að öðrum holufjölda en 9 eða 18, sem núgildandi kemur ekki til móts við.
Lesa má umfjöllun Links Magazine um ákvörðun GSÍ með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
