Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 12. 2017 | 05:45

LPGA: Ariya sigurvegari Manulife Classic e. bráðabana – Hápunktar 4. dags

Það var önnur thaílensku golfsystranna, Ariya Jutanugarn, sem sigraði á Manulife LPGA Classic.

Ariya var jöfn þeim Lexi Thompson og In Gee Chun eftir hefðbundnar 72 holur og því varð að koma til bráðabana milli þeirra, þar sem Ariya sigraði.

Allar léku þær stöllur, Jutanugarn, Chun og Thompson á samtals 17 undir pari, hver.

Til þess að sjá lokastöðuna á Manulife LPGA Classic SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta Manulife LPGA Classic SMELLIÐ HÉR: