Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 12. 2017 | 05:00

Evróputúrinn: Fritelli sigraði í Austurríki – Hápunktar 4. dags á Lyoness Open

Það var Dylan Fritelli frá S-Afríku sem bar sigurorð af keppendum sínum á Lyoness Open, í Austurríki í gær, sunnudaginn 11. júní 2017, en mótið var mót vikunnar á Evróputúrnum.

Þetta er fyrsti sigur Fritelli á Evrópumótaröðinni.

Fritelli lék á samtals 12 undir pari, 276 höggum, (70 71 68 67).

Jafnir í 2. sæti urðu 3 kylfingar: Englendingurinn David Horsey, Jbe Kruger frá S-Afríku og Mikko Korhonen frá Finnlandi; allir 1 höggi á eftir Fritelli þ.e. á samtals 11 undir pari, hver.

Sjá má lokastöðuna á Lyoness Open með því að SMELLA HÉR:

Sjá má hápunkta 4. dags á Lyoness Open með því að SMELLA HÉR: