Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2017 | 18:45

LPGA: Ólafía byrjar illa á Manulife – Fylgist með hér!

Æ, æ, æ.

Ólafía Þórunn átti afar erfiða byrjun á Manulife LPGA Classic.

Hún er aðeins búin að spila 2 holur en er þegar komin 3 yfir.

Á fyrstu holunni sem var par-4 fékk hún tvöfaldan skolla og á þeirri næstu sem einnig er par-4 kom annar skolli.

Það er vonandi að Ólafía jafni sig, finni jafnvægið og rétti þetta við!

Skorin eru afar lág á mótinu það sem af er; í efsta sæti sem stendur eru norska frænka okkar Suzann Pettersen og Mi Hyang Lee frá S-Kóreu.

Fylgjast má með Ólafíu Þórunni á skortöflu með því að SMELLA HÉR: