Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2017 | 18:00

Evróputúrinn: Garcia kylfingur aprílmánaðar

Það kom fáum á óvart að Sergio Garcia skyldi vera valinn kylfingur aprílmánaðar á Evróputúrnum, eftir frækinn sigur á 1. risamóti ársins, The Masters, þar sem hann hafði betur gegn Justin Rose.

Garcia er 3. Spánverjinn til þess að sigra á Masters, en á undan honum hafa þeir Seve Ballesteros (1980 aog 1984) og José María Olazábal (1994 og 1999) sigrað í mótinu.

Það var mjög við hæfi að sigur Garcia kom á þeim degi sem átrúnaðargoð hans í golfinu, Seve, hefði orðið 60 ára.

Í 2. sæti um kjör á kylfingi aprílmánaðar Evróputúrsins varð Justin Rose, fyrir frábæra frammistöðu á Masters og í 3. sæti Edoardo Molinari, eftir að hann sigraði á fyrsta móti sínu í 7 ár, Trophée Hassan II.

Mér er heiður af því að hafa verið útnefndur Hilton European Tour kylfingur mánaðarins,” sagði Garcia m.a. eftir að honum bárust tíðindin. „Þetta hefir verið eftirminnilegur tími í lífi mínu frá sigrinum á Masters og vonandi get ég endurtekið þetta mörgum sinnum.“

Að vinna minn fyrsta risamótssigur á Augusta var draumur sem rættist og staðreyndin að hann kom á þeim degi sem Seve myndi hafa orðið 60 ára gerði hann (sigurinn) enn sérstakari. Hann (Seve) hefir alltaf verið stærsti innblástur minn í þessum leik og ég stend í þakkarskuld við hann.“

Þetta er í 2. sinn á árinu sem Garcia er valinn kylfingur mánaðarins á Evróputúrnum, en hann var áður valinn kylfingur febrúarmánaðar 2017.