Valdís Þóra 1. varamaður inn á Opna bandaríska kvenrisamótið
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, var hársbreidd frá því að komast inn á Opna bandaríska meistaramótið eftir úrtökumót á Englandi. Valsdís lék á einu höggi yfir pari vallar á 36 holum og komst hún í þriggja manna bráðabana um tvö laus sæti á risamótinu.
Caroline Hedwall frá Svíþjóð og Carly Booth frá Skotlandi léku á -1 samtals og komust beint inn á risamótið. Kelsey MacDonald frá Skotlandi og Meghan MacLaren frá Englandi komust áfram eftir bráðabanann gegn Valdísi Þóru sem fékk skolla á meðan þær fengu par.
Valdís Þóra var því hársbreidd frá því að komast inn á risamótið, en íslenskur kylfingur hefur aldrei komist inn á risamót í kvenna – eða karlaflokki.
Það er ekki öll von úti hjá Valdísi Þóru en hún er fyrsti varamaður til þess að komast inn á mótið sem fram fer í júlí. Mótið fer fram á Bedminster í New Jersey, dagana 13.-16. júlí. Í fyrra komst fyrsti varamaðurinn inn þannig að líkurnar eru ágætar að Valdís Þóra komist inn á risamótið.
Heimild: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
