Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 3. 2017 | 18:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur T-42 e. 3. dag á Swiss Challenge

Birgir Leifur Hafþórsson er í 42.-50. sæti fyrir lokahringinn á Swiss Challenge mótinu á Áskorendamótaröðinni sem fram fer á Golf Sempachersee vellinum, sem opnaði árið 1995 og er hannaður af Rossknecht Kurt.

Birgir Leifur lék frábært golf fyrstu tvo keppnisdagana, þar sem hann var í toppbaráttunni með tvo hringi upp á 67 högg eða 8 högg undir pari samtals.

Á 3. hringnum gekk ekkert upp hjá Birgi, en hringinn lék hann á 76 höggum eða 5 yfir pari.

Hann er því samtals á 3 yfir pari fyrir lokahringinn.

Til þess að sjá stöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR: 

Þetta er áttunda árið í röð sem þetta mót fer fram á þessum velli.

Mótið í Sviss er annað mótið á þessu tímabili hjá Birgi á Áskorendamótaröðinni. Hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á því móti sem fram fór í Andalúsíu á Spáni.