Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2017 | 20:00

Nordic Golf League: Axel lauk leik í 3. sæti á Jyske Bank – Ísl. keppendurnir stóðu sig vel!

Axel Bóasson, GK, endaði í þriðja sæti á Jyske Bank PGA Championship sem lauk í dag í Silkeborg. Andri Þór Björnsson GR lék frábært golf á lokahringum þar sem hann fékk átta fugla og endaði hann í áttunda sæti. Haraldur Franklín Magnús GR endaði í 19. sæti.

Mótið er hlut af Nordic League atvinnumótaröðinni sem er í þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Axel sem keppir fyrir Keili var í öðru sæti fyrir lokahringinn en hann lék á 71 höggi í dag eða -1. Samtals lék hann á -8 (73-64-71).

Andri Þór Björnsson úr GR átti frábæran lokahring þar sem hann lék á -7 eða 65 höggum. Samtals var hann á -4 sem skilaði honum í áttunda sæti, (73-74-68).

Texti: GSÍ