Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingar dagins: Jason Wright og Jocelyne Bourassa – 30. maí 2017

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Jason Wright og  Jocelyne Bourassa.

Jason Wright fæddist 30. maí 1987 og á því 30 ára stórafmæli!!! Hann er frá Durrington í Wiltshire, á Englandi en býr á Akureyri og er í Golfklúbbi Akureyrar.  Jason er mikill Manchester United aðdáandi, en þess utan frábær kylfingur.  Komast má á facebook síðu Jason Wright til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan

Jason Wright

Jason Wright

Jason Wright (30 ára – innilega til hamingju með stórafmælið!!!)

Jocelyne Bourassa fæddist í Shawinigan í Quebec, Kanada 30. maí 1947 og er því 70 ára stórafmæli í dag. Hún átti frábæran áhugamannaferil vann á unglingamótum í Quebec, 1963, 1964 og 1965 og einnig sigraði hún á Canadian Women´s Amateur. Hún var kanadískur meistari 1971 og gerðist síðan atvinnumaður í golfi fyrir nákvæmlega 40 árum síðan þ.e. 1972.

Jocelyn Bourassa á sínum sokkabandsárum

Jocelyn Bourassa á sínum sokkabandsárum

Bourassa nam íþróttafræði við Université de Montréal þar sem hún lagði m.a. stund á og var í blak-, körfubolta- og skíðaliði skólans og að auki í liði skólans í frjálsum.

Bourassa spilaði á LPGA á árunum 1972-1979 og var m.a. valin nýliði ársins á LPGA fyrir 40 árum síðan, 1972. Sama ár hlaut hún Bobbie Rosenfeld Award sem veitt er besta kveníþróttamanni Kanada. Eins varð hún sama ár tekinn í Order of Canada. Ári síðar vann hún fyrst kvenna La Canadienne golfmótið, sem er eini sigur hennar á LPGA.

Árið 1995 var Bourassa tekin í frægðarhöll Quebec og 1996 í frægðarhöll Kanada.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jocelyne Bourassa, 30. maí 1947 (70 ára STÓRAFMÆLI!!!); Sverrir Friðþjófsson, GR, 30. maí 1950 (67 ára); Þórir Gíslason kenndur við Burkna, 30. maí 1954 (63 ára); Michael Clayton, 30. maí 1957 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); HólaPrjónn Ingu (58 ára); Rubén Alvarez, 30. maí 1961 (56 ára); Jerry Springer, 30. maí 1968 (49 ára); Audrey Wooding, 30. maí 1970 (47 ára); Jason Wright, GA f. 30. maí 1987 (30 ára STÓRAFMÆLI); Eiður Ísak Broddason, GF, 30. maí 1995 (22 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is