Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2017 | 13:00

Íslandsbankamótaröðin 2017 (1): Henning Darri sigraði í piltaflokki (19-21 árs)

Henning Darri Þórðarson, GK, stóð uppi sem sigurvegari í flokki 19-21 árs pilta á 1. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2017, sem fram fór á Strandarvelli, Hellu, dagana 26.-28. maí s.l.

Þess mætti geta að enginn þátttakandi var í stúlknaflokki 19-21 árs og er það miður.

Henning Darri var á besta skorinu yfir alla flokka í mótinu. Hann lék á samtals 2 yfir pari, 212 höggum ( 71 70 71).

Í 2. sæti var klúbbfélagi hans, Vikar Jónasson, GK á 5 yfir pari, 215 höggum (78 68 69); en það má segja að slakur upphafshringur Vikars hafi orðið til þess að hann varð af sigri.

Jóhannes Guðmundsson, GR, varð síðan í 3. sæti á samtals 6 yfir pari, 216 höggum (75 70 71).

Sjá má heildarlokastöðuna í piltaflokki 19-21 árs á 1. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2017 hér að neðan:

1 Henning Darri Þórðarson GK -2 F 33 38 71 1 71 70 71 212 2
2 Vikar Jónasson GK 0 F 32 37 69 -1 78 68 69 215 5
3 Jóhannes Guðmundsson GR 1 F 35 36 71 1 75 70 71 216 6
4 Eggert Kristján Kristmundsson GR 3 F 34 35 69 -1 75 74 69 218 8
5 Gunnar Smári Þorsteinsson GR 2 F 35 36 71 1 75 73 71 219 9
6 Birgir Björn Magnússon GK 3 F 35 36 71 1 76 76 71 223 13
7 Víðir Steinar Tómasson GA 2 F 35 36 71 1 74 79 71 224 14
8 Patrekur Nordquist Ragnarsson GR 0 F 36 39 75 5 76 73 75 224 14
9 Ragnar Áki Ragnarsson GKG 3 F 36 39 75 5 76 74 75 225 15
10 Gunnar Blöndahl Guðmundsson GKG 4 F 37 38 75 5 81 75 75 231 21