Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2017 | 10:30

Íslandsbankamótaröðin 2017 (1): Kinga sigraði í stelpuflokki (14 ára og yngri)

Það var Kinga Korpak, GS, sem stóð uppi sem sigurvegari í stelpuflokki (14 ára og yngri)  á 1. móti Íslandsbankamóta-raðarinnar, sem fram fór á Strandarvelli á Hellu 26.-28. maí sl.

Í stelpuflokki voru spilaðir 2 hringir, 27.-28. maí 2017.

Frá vinstri: Sigurður Pétur Oddsson mótastjóri GSÍ, Eva, Kinga, María Eir og Jussi Pitkanen afreksstjóri GSÍ, Mynd: GSÍ

Frá vinstri: Sigurður Pétur Oddsson mótastjóri GSÍ, Eva María, sigurvegarinn Kinga, María Eir og Jussi Pitkanen afreksstjóri GSÍ, Mynd: GSÍ

Kinga lék hringina tvo á samtals 2 yfir pari, 142 höggum  (69 73) átti m.a. stórglæsilegan 1. hring upp á 1 undir pari, 69 högg!!!

Þess ber að geta að Kinga er fædd 9. desember 2003 og því aðeins 13 ára.

Kinga var deildi jafnframt því að vera á næstbesta skori mótsins yfir alla aldursflokkana, ásamt Kristófer Karli Karlssyni, GM sem sigraði í drengjaflokki (15-16 ára); en þau bæði spiluðu tvo hringi – sá sem var á besta skorinu var Henning Darri Þórðarson, GK, piltaflokki (19-21 árs), en hann var einnig á 2 yfir pari, en spilaði 3 hringi.

Heildarúrslit í stelpuflokki (14 ára og yngri) á 1. mót Íslandsbankamótaraðarinnar á Hellu 2017 urðu eftirfarandi:

1 Kinga Korpak GS 6 F 36 37 73 3 69 73 142 2
2 María Eir Guðjónsdóttir GM 22 F 38 40 78 8 84 78 162 22
3 Eva María Gestsdóttir GKG 8 F 39 42 81 11 83 81 164 24
4 Nína Margrét Valtýsdóttir GR 14 F 40 44 84 14 83 84 167 27
5 Brynja Valdís Ragnarsdóttir GR 21 F 44 43 87 17 90 87 177 37
6 Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR 9 F 46 40 86 16 97 86 183 43
7 Bjarney Ósk Harðardóttir GKG 25 F 48 52 100 30 90 100 190 50
8 Margrét K Olgeirsdóttir Ralston GM 17 F 49 51 100 30 111 100 211 71