Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2017 | 17:00

Pro Golf Tour: Þórður Rafn lauk keppni T-15 á St. Pölten mótinu

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, tók þátt í St. Pölten mótinu, en er hluti þýsku Pro Golf Tour mótaraðarinnar og lauk í gær, en það stóð dagana  23.-25. maí 2017.

Þátttakendur voru 81.

Þórður Rafn lék á samtals 7 undir pari, 206 höggum (68 72 66) og lauk keppni T-15.

Sigurvegari í mótinu varð Stanislav Matus frá Tékklandi á samtals 17 undir pari.

Sjá má lokastöðuna á St. Pölten mótinu með því að SMELLA HÉR: