Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2017 | 19:00

Eimskipsmótaröðin 2017 (3): Ragnhildur efst í kvennaflokki e. 1. dag

Það er Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, sem er efst eftir 1. keppnisdag á Egils Gull mótinu, sem hófst í dag, 19. maí 2017.

Hún lék á samtals 1 undir pari, 71 höggi.

Á hringnum fékk Ragnhildur glæsiörn á 7. braut Leirunnar og síðan 2 skolla (á 12. og 16. braut) og lauk hringnum í dag á fugli (á 17. braut).

Í 2. sæti 4 höggum á eftir er Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK á samtals 3 yfir pari, 75 höggum og 3. sætinu deila 3 kylfingar Berglind Björnsdóttir, GR; Saga Traustadóttir, GR og Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK; allar á samtals 5 yfir pari.

Hér að neðan má sjá stöðuna í kvennaflokki eftir 1. dag Egils Gull mótsins:

1 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 1 F 34 37 71 -1 71 71 -1
2 Gunnhildur Kristjánsdóttir GK 4 F 39 36 75 3 75 75 3
3 Berglind Björnsdóttir GR 3 F 40 37 77 5 77 77 5
4 Saga Traustadóttir GR 3 F 38 39 77 5 77 77 5
5 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 5 F 41 36 77 5 77 77 5
6 Kinga Korpak GS 9 F 40 38 78 6 78 78 6
7 Hulda Clara Gestsdóttir GKG 7 F 39 39 78 6 78 78 6
8 Þórdís Geirsdóttir GK 4 F 41 38 79 7 79 79 7
9 Heiða Guðnadóttir GM 4 F 39 40 79 7 79 79 7
10 Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 6 F 42 37 79 7 79 79 7
11 Zuzanna Korpak GS 8 F 42 40 82 10 82 82 10
12 Anna Sólveig Snorradóttir GK 4 F 43 40 83 11 83 83 11
13 Stefanía Kristín Valgeirsdóttir GA 7 F 44 40 84 12 84 84 12
14 Andrea Ýr Ásmundsdóttir GA 7 F 43 44 87 15 87 87 15
15 Eva Karen Björnsdóttir GR 6 F 44 43 87 15 87 87 15
16 Ragnheiður Sigurðardóttir GKG 8 F 41 47 88 16 88 88 16
17 Amanda Guðrún Bjarnadóttir GHD 7 F 44 44 88 16 88 88 16
18 Arna Rún Kristjánsdóttir GM 9 F 44 46 90 18 90 90 18