Guðmundur Ágúst spilar á Nordea Masters!
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, afrekskylfingur úr GR, kemur til með að spila á Nordea Masters mótinu, sem er hluti af Evrópumótaröðinni.
Guðmundur Ágúst öðlaðist keppnisrétt eftir frábæra frammistöðu í úrtökumóti fyrir Nordea Masters.
Úrtökumótið fór fram í dag, 15. maí 2017, í Barsebäck Golf & Country Club og lék Guðmundur Ágúst á 5 undir pari 68 glæsi-höggum og varð í 2. sæti!! Á hringnum fékk Guðmundur Ágúst 6 fugla og 1 skolla.
Andri Þór Björnsson, GR, tók einnig þátt í úrtökumótinu, en hann komst ekki á Nordea Masters, lék á 1 undir pari, 72 höggum og varð T-17, en það dugði ekki til. Það sama má segja um Axel Bóasson, GK; hann lék á 2 yfir pari, 75 höggum og varð T-44 og Harald Franklín Magnús, GR, en hann lék á 4 yfir pari, 77 höggum og varð T-76.
Aðeins 3 efstu í úrtökumótinu fengu í verðlaun að spila á Nordea Masters. Mikil spenna var í ár um hver yrði 3. kylfingurinn inn úr úrtökumótinu en 4 kylfingar deildu 3. sætinu eftir 18 holu spil og varð því að koma til bráðabana milli þeirra.
Sá lukkulegi í ár varð Svíinn Andreas Lemke, sem vann með fugli þegar á fyrstu holu bráðabanans. Sá sem sigraði í úrtökumótinu var Frakkinn Adrien Bernadet, en hann lék á 6 undir pari, aðeins einu höggi betur en Guðmundur Ágúst.
Nordea Masters mótið fer fram dagana 1.-4. júní n.k.
Sjá má lokastöðuna í úrtökumótinu fyrir Nordea Masters með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
