GM: Bakkakot opnar/Vorverkadagur í dag!
Þá er komið að opnun í Bakkakoti þetta sumarið. Í dag, laugardaginn 13. maí, verður vorverkadagur í Bakkakoti. Þar eru ýmis létt verk í boði og er þar helst að nefna ruslatínslu, yfirfara göngustíga o.fl.
Vorverkadagurinn hefst kl. 10:00 og er áætlað að vinna í um 2 tíma og að verki loknu verða grillaðar pylsur ofan í mannskapinn.
Félagsmenn eru hvattir til að koma og hjálpa en vinna þessir skiptir miklu máli við opnun vallar. Þeir sem koma og aðstoða við vinnudaginn er velkomið að leika völlinn eftir hádegi á laugardegi. Einnig fá þátttakendur á vorverkadeginum frítt í Opnunarmót Vallarsvæðanna þann 21. maí.
Rástímar í Bakkakoti áfram til reynslu
Ákveðið hefur verið að halda áfram til reynslu rástímaskráningu í Bakkakoti núna í vor. Rástímaskráning er því virk frá og með sunnudeginum 14. maí þar til annað verður ákveðið.
Það eru nokkur atriði sem er mikilvægt að hafa í huga varðandi rástímaskráninguna í Bakkakoti.
Þú velur Bakkakotsvöll á golf.is og bókar rástíma
Ef þú ætlar 18 holur þarftu að bóka tvo rástíma. Síðari rástíminn er bókaður 2 klst og 10 mínútum frá fyrri rástíma þó mögulega geti það breyst.
Þú meldar þig inn á rástímann með félagsskírteini. Eftir 9 holur kemur þú við í skálanum og meldar þig inn fyrir seinni 9 holurnar.
Einnig skal sýna starfsmanni í skála skírteini sitt.
Óheimilt er að leika í Bakkakoti nema að skrá rástíma.
Búið er að koma upp tölvuskjá og kortaskanna þar sem nauðsynlegt er að melda sig inn í skráðan rástíma. Búnaðurinn er í andyri og er alltaf aðgengilegur þó afgreiðsla sé lokuð og skal því einnig nota hann utan opnunartíma. Við biðjum félagsmenn um að sýna þessu þolinmæði en viðbúið er að einhverjir árekstrar komi upp á meðan allir eru að venjast breyttu fyrirkomulagi.
Vakin er sérstök athygli félagsmanna á því að búnaður er einnig til staðar til að greiða vallargjald. Séu gestir með í för verða þeir að greiða áður en farið er út á völl. Ekkert fríspil eða afsláttarsamningar gilda utan opnunartíma og skulu allir greiða vallargjald.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
