Champions Tour: John Daly með 1. sigur sinn frá 2004 á Insperity Inv.!!! – Hápunktar 4. dags
Það var John Daly sem stóð uppi sem sigurvegari á Insperity Invitational á Champions Tour!!!
Sigurskor Daly var 14 undir pari, 202 högg (68 65 69).
Í 2. sæti voru Tommy Armour III og Kenny Perry, báðir höggi á eftir Daly þ.e. á 13 undir pari, hvor. Miguel Angel Jimenez lauk keppni í sama móti T-7.

John Daly ásamt kaddý á Insperity Inv. 2017
Daly, sem var í forystu fyrir lokahringinn, hóf 4. dag með flugeldum þ.e. erni á par-5, 1. holu lokahringsins og bætti síðan við fugli á 3. holu; því miður kom skolli á 5. sem hann tók síðan aftur með fugli á 7. holu.
Daly náði síðan að setja niður 3 fugla á fjögurra holu kafla þ.e. á 12., 13. og 15. holu en átti síðan ljótan lokakafla, þar sem hann virtist fara á taugum?, fékk skolla á 16.-18. holu.
„Þetta var ekki fallegt í lokinn, en ég náði þessu og það skiptir öllu máli,“ sagði Daly, sem spilaði í fyrsta sinn á Champions Tour, í fyrra, 2016, einmitt í þessu móti, Insperity Invitational. „Sigur er sigur og ég hélt ekki að hann myndi koma svo fljótt!„
„Nú get ég sagst vera sigurvegari á Champions Tour, sem er virkilega svalt. Vonandi get ég haldið í þetta sjálfstraust.“

John Daly fagnar 1. Champions Tour sigri sínum!
Sjá má hápunkta 4. dags á Insperity Invitational með því að SMELLA HÉR:
Sjá má lokastöðuna á Insperity Invitational með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
