Hver er kylfingurinn: Sei Young Kim?
Það var Sei Young Kim sem sigraði í Lorenu Ochoa holukeppninni, sl. helgi, 7. maí 2017.

Sei Young Kim ásamt Lorenu Ochoa eftir sigur þeirra fyrrnefndu í holukeppni þeirrar síðuarnefndu
Kim fæddist í Seúl, Kóreu, 21. janúar 1993 og er því 24 ára. Hún byrjaði að spila golf af sjálfri sér þ.e. var ekki dregin í golfið af neinum; hún spilaði bara af einskærum áhuga. Kim á tvö systkini.
Hún spilar bæði á kóreanska LPGA (KLPGA) og LPGA Tour í Bandaríkjunum. Kim hefir sigrað 5 sinnum á KLPGA (á árunum 2013 og 2014) og 6 sinnum á bandaríska LPGA Tour.
Þannig sigraði Kim á Pure Silk-Bahamas LPGA Classic, árið 2015; á LPGA Lotte Championship, árið 2015; á The Blue Bay LPGA, árið 2015 eða þrívegis nýliðaár sitt á LPGA; og eins á JTBC Founders Cup, 2016 og the Meijer LPGA Classic, árið 2016.

Sei Young Kim eftir sigurinn á JTB Founder Cup 2016
Sjötti sigurinn kom nú um helgina, 7. maí 2017 þ.e. á Citibanamex Lorena Ochoa Match Play presented by Aeromexico and Delta eins og áður segir.
Meðal viðurkenninga sem Kim hefir hlotið er að árið 2015 var hún valinn nýliði ársins á LPGA Tour og eins hlaut hún viðurkenningu sama ár, þ.e. Kia Most Compelling Performance Award.
Sei Young Kim keppti fyrir hönd S-Kóreu í Ólympíuleikunum í Ríó 2016.

Sei Young Kim á Ólympíuleikunum
Sama ár var hún einnig fulltrúi S-Kóreu í UL International Crown.
Meðal áhugamála Kim er að hlusta á tónlist og lesa bækur.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
