Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2017 | 20:00

Nordic Golf League: Axel T-2 – efstur af Íslendingunum – e. 2. dag í Danmörku

Það eru 4 íslenskir kylfingar sem taka þátt í Bravo Tours Open – by Visit Tønder mótinu, sem fram fer dagana 3.-5. maí 2017 á Rømø golf linksaranum, einum fallegasta golfvelli Jótlands í Havneby.

Þetta eru þeir Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Haraldur Franklín Magnús, GR.

Af ofangreindum 4 kylfingum hefir Axel leikið best en eftir 2. keppnisdag er hann á samtals 1 yfir pari, 145 höggum (73 72).

Haraldur Franklín er T-14 á samtals 5 yfir pari (73 76) og Andri Þór T-23 á samtals 6 yfir pari (76 74).

Guðmundur Ágúst komst ekki í gegnum niðurskurð, en hann var á óvenjulegu háu skori af hans hálfu 16 yfir pari.

Sjá má stöðuna á Bravo Tours Open – by Visit Tønder mótinu með því að SMELLA HÉR: