Haraldur Franklín Magnús
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2017 | 21:21

Nordic Golf League: Axel og Haraldur T-9 e. 1. dag í Danmörku

Það eru 4 íslenskir kylfingar sem taka þátt í Bravo Tours Open – by Visit Tønder mótinu, sem fram fer dagana 3.-5. maí 2017 á Rømø golf linksaranum, einum fallegasta golfvelli Jótlands í Havneby.

Þetta eru þeir Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Haraldur Franklín Magnús, GR;

Þeir Axel og Haraldur Franklín léku best Íslendinganna eru T-9 þ.e. jafnir 5 öðrum kylfingum í 9. sæti eftir 1. dag; en allir komu þeir í hús á 1 yfir pari, 73 höggum.

Andri Þór lék á 4 yfir pari og er T-38 eftir 1. dag og Guðmundur Ágúst lék á 9 yfir pari, 81 höggi og er T-79 og eini íslenski keppandinn, sem er undir niðurskurðarlínunni, en niðurskurður er sem stendur miðaður við 5 yfir pari og betra.

Sjá má stöðuna á  Bravo Tours Open – by Visit Tønder mótinu með því að SMELLA HÉR: