Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2017 | 12:00

Fyrirhuguð meiriháttar endurnýjun á The Belfry

Gerðar hafa verið kunnar fyrirhugaðar breytingar á Belfry golfstaðnum í West Midlands í Englandi, sem fela m.a. í sér stækkun staðarins.

Á The Belfry hafa m.a. einhver sögulegustu augnablik í Ryder bikars sögunni átt sér stað.

Fyrirhugaðar breytingar gætu skapað 100 störf sagði talsmaður eiganda staðarins, KSL Capital Partners.

Á dagskrá er einnig að byggja sundlaugasvæði fyrir íbúa á golfstaðnum og breyta Bel Air næturklúbbnum, sem er þarna á staðnum í lúxus heilsuvin (spa).

The Belfry mun einnig geta státað af nýjum 500 manna fundarherbergi og auka 112 svefnherbergjum.  Fjörutíu þessara nýju herbergja munu tengjast nýja spa-inu.

Sem stendur er Belfry hótelið með 320 herbergi og með 674 starfsmenn í fullri vinnu.