Hver er kylfingurinn: Harukyo Nomura?
Japanski kylfingurinn Haru Nomura, sem reyndar heitir fullu nafni Harukyo Nomura (á japönsku: 野村敏京; á kóreönsku: 문민경); sigraði í gær á Volunteers of America Texas Shootout, þar sem Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir komst ekki í gegnum 2. niðurskurð eftir 3. hring.
Nomura er e.t.v. ekki þekktasti kylfingur LPGA og því ekki að undra að sumir spyrji: Hver er kylfingurinn?

Haru Nomura
Haru Nomura fæddist 25. nóvember 1992 í Yokohama í Japan og er því 24 ára.
Nomura á kóreanska móður og japanskan föður og fluttist til S-Kóreu þegar hún var 5 ára og bjó í Seúl höfuðborg S-Kóreu þar til hún útskrifaðist frá Myongji menntaskólanum. Árið 2011 valdi hún japanskt þjóðerni og keppir því f.h. Japan, en býr í Honolulu á Hawaii.
Nomura byrjaði að spila golf 11 ára. Árið 2007 varð sigraði hún á the Japan Junior Golf Championship fyrir stelpur 12–14 ára.
Árið 2009 var hún sá áhugamaður sem var með lægsta skorið á Japan Women’s Open.
Nomura gerðist atvinnumaður í desember 2010 eftir að henni hafði tekist að komast á LPGA í fyrstu tilraun sinni. Hún varð T-39 í lokaúrtökumótinu og hlaut kortið sitt á LPGA fyrir 2011 keppnistímabilið.
Árið 2011 tók Nomura þátt í U.S. Women’s Open, eftir að hafa komist í gegnum úrtökumót.
Fyrsti sigur hennar sem atvinnumanns var á LPGA Futures Tour í apríl 2011 en þar vann hún sigur á Daytona Beach Invitational.
Næst sigraði hún í maí 2011 á PGA of Japan Tour og þriðji sigur hennar var á LPGA of Korea Tour árið 2015.
Árið 2013 varð hún í 2. sæti á Mizuno Classic á LPGA.

Haru Nomura eftir sigurinn á ISPS Handa 2016
Þann 21. febrúar 2016 (í fyrra) hafði Nomura betur gegn nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Lydiu Ko, og vann fyrsta LPGA mót sitt: ISPS Handa Women’s Australian Open, en þetta var fyrsti sigur japansks kylfings á LPGA frá því Mika Miyazato sigraði á the Safeway Classic árið 2012.
Með þessum sigri fór Nomura úr 67. sætinu á Rolex heimslistanum í 50. sætið og var í 2. sæti á peningalista LPGA 2016.
Nú í gær, 30. apríl 2017, bætti hún enn einni rósinni í hnappagatið: sigur á Volunteers of America Texas Shootout.
Nomura hefir því sigrað 3 sinnum á LPGA; 1 sinni á Evrópumótaröð kvenna; 1 sinni á japanska LPGA; 1 sinni á kóreanska LPGA; 1 sinni á ALPG og 1 sinni á Symetra Tour.
Besti árangur Nomura í risamóti er T-8 árangur á Evian Masters 2016.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
