Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Agla Hreiðarsdóttir – 15. apríl 2017

Það er Agla Hreiðarsdóttir, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Agla er fædd 15. apríl 1960 og er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Agla tekur virkan þátt í innanfélagsmótum hjá Keili, bæði púttmótum og mótaröðum sem og öðrum opnum golfmótum og spilar golf hérlendis sem erlendis. Sjálf hefir afmæliskylfingurinn sagt: „Ég spila golf og verð sjúkari í golfið með hverju sumrinu enda frábær félagsskapur og fín útivera.“

Agla er gift Gunnari Bergmann og á 3 börn, Gunnar, Karen og Þóreyju og tvo dásamlega ömmu/afastráka, Gabríel Bergmann 8 ára og Kristján Frey næstum 7 ára.

Hægt er að komast á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan:

Agla Hreiðarsdóttir

Agla Hreiðarsdóttir

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Davíð Bjarnason, 15. apríl 1954 (63 ára); Barbara Barrow, spilaði á LPGA, 15. apríl 1955 (62 ára); Sjöfn Sigþórsdóttir, 15. apríl 1956 (61 árs); Gunnar Kristjánsson, 15. apríl 1959 (58 ára);  Hans Henttinen, 15. apríl 1960 (57 ára); Samúel Ingi Þórarinsson, 15. apríl 1960 (57 ára);  Michelle Redman, spilaði á LPGA, 15. apríl 1965 (52 ára); Suzy Green, spilaði á LPGA, 15. apríl 1967 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Christopher McClain (Chris) Smith, 15. apríl 1969 (48 ára); Bronson La’Cassie, ástralskur kylfingur, f. 15. apríl 1983 (34 ára); Finnbogi Haukur Axelsson, 15. apríl 1983 (34 ára); Authentic Exception, 15. apríl 1983 (34 ára) …. og …. Fótaaðgerðastofa Hólmfríðar Og Láru 15. apríl 1909 (108 ára); Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir, 15. apríl

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is