Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2017 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Rúnar hefur leik í dag í New Jersey

Rúnar Arnórsson og golflið hans í bandaríska háskólagolfinu Minnesota hefja keppni í dag á Princeton Invitational.

Mótið fer fram í Springdale GC í Springdale, New Jersey, 8.-9. apríl 2017.

Þátttakendur eru 75 frá 15 af háskólum þ.á.m. sumum af bestu háskólum Bandaríkjanna.

Rúnar fer út kl. 8:02 að staðartíma sem er kl. 12:02 að íslenskum tíma.

Fylgjast má með Rúnar og Minnesota á skortöflu með því að SMELLA HÉR: