Notah Begay segir vel geta verið að Tiger komi aftur til keppni í næsta mánuði
Annað árið í röð er Tiger ekki með á Masters, en han dró sig úr mótinu föstudaginn fyrir keppni.
En annað en á síðasta ári, þá getum við búist við að sjá Tiger keppa seinna á árinu.
A.m.k. ef eitthvað er að marka orð vinar Tiger frá því á háskólaárunum, Notah Begay III, sem hann viðhafði í The Rich Eisen Show.
Begay III starfar m.a. sem golfgreinandi fyrir NBC/Golf Channel og í þættinum var m.a. til umræðu hvenær hann héldi að Tiger myndi snúa aftur til keppni.
Meðal þess sem Begay III sagði var eftirfarandi:
„[Masters]myndi líklega ekki hafa verið rétti staðurinn fyrir Tiger að hefja keppni eftir slæmt gengi fyrr á árinu og ég held að við ættum líklega að líta til einhverra móta rétt eftir Players Championship.“
Eisen spurði Begay síðan hvort hann teldi að Tiger myndi taka þátt í Opna bandaríska á Erin Hills.
„Ó, það er svo sannarlega möguleiki á því,“ sagði Begay. „Það er örugglega mót sem hann er búinn að merkja við á dagskrá sinni, en hann verður a.m.k. að spila í 1 eða 2 mótum áður til þess að sjá hvar hann er líkamlega, hvar leikur hans er, þ.e. hvort hann geti slegið höggin sem hann vill slá.„
Tiger tók síðast þátt í Dubai Desert Classic í febrúar og dró sig úr móti eftir 1. hring upp á 77 högg en þá var hann aftur kominn með verki í bakið. Eftir það hefir hann aðallega komið fram opinberlega til að kynna nýútkomna bók sína um ótrúlegan sigur hans á Masters 1997.
The Players Championship fer fram 11.-14. maí og The AT&T Byron Nelson, Dean & DeLuca (Colonial) og the Memorial eru næstu 3 mót á eftir.
Tiger spilaði síðast á Byron Nelson árið 2005 og komst ekki í gegnum niðurskurð þar og hafði þá komist 142 sinnum í gegnum niðurskurð þar áður. Hins vegar hefir hann sigrað á The Memorial 5 sinnum, síðast 2012.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
