Bjarki Pétursson, GB. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2017 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Bjarki, Gísli og Kent State luku keppni í 7. sæti

Bjarki Pétursson, GB og Gísli Sveinbergsson, GK luku keppni í gær á Aggie Inv. á Traditions golfvellinum í Bryan, Texas.

Mótið stóð frá 1.-2. apríl 2017 og lauk í gær –  3. hringur var ekki spilaður vegna slæmsku veðurs og var mótið stytt í 36 holu mót.

Þátttakendur voru 75 frá 13 háskólum.

Bjarki lék á samtals 5 yfir pari, 149 höggum (77 72) og varð T-31, en Gísli lék á samtals 8 yfir pari, 152 höggum (74 78) og varð T-52.

Kent State háskólalið þeirra Bjarka og Gísla lauk keppni í 7. sæti í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á Aggie Inv.með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Kent State er í Indiana 15.-16. apríl n.k.