Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Björgvin Sigurbergsson
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2017 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá og félagar luku keppni á Hawaii í 6. sæti!

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og félagar hennar í Fresno State luku keppni í gær á Anuenue Spring Break Classic mótinu.

Mótið fór fram á The Bay golfvellinum á Kapalua, á eyjunni Maui á Hawaii og stóð 27.-29. mars 2017.

Þátttakendur voru 90 frá 15 háskólum.

Guðrún Brá lék á samtals  10 yfir pari 226 höggum (78 73 75) og varð T-27 í einstaklingskeppninni.

Lið Fresno State varð í 6. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Anuenue Spring Break Classic SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Guðrúnar Brá og Fresno State er 10. apríl í Oklahoma.