Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2017 | 12:00

LET Access: Valdís Þóra tekur þátt í Terre Blanche Ladies Open sem hefst nk. föstudag

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, undirbýr sig fyrir næstu keppnistörn á LET mótaröðinni, en næstu verkefni á sterkustu mótaröð Evrópu verða í apríl hjá atvinnukylfingnum úr Leyni.

Valdís Þóra er mætt til leiks til Frakklands þar sem hún mun keppa á LET Access mótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu á eftir LET mótaröðinni.

Hún hefur keppni nk. föstudag í Terre Blanche Ladies Open mótinu, sem fram fer dagana 31. mars – 2. apríl 2017.

Verðlaunafé er € 40,000.

Mótið fer fram á Golf de Terre Blanche, í Terre Blanche, Frakklandi en Valdís hefur verið við æfingar á Spáni, á Novo Sancti Petri svæðinu.

Komast má á vefsíðu mótsins með því að SMELLA HÉR: