Helga Kristín Einarsdóttir, NK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2017 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Helga og Albany í 15. sæti e. 2. dag í Hawaii

Helga Kristín Einarsdóttir GK, og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu University of Albany,  taka líkt og Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Fresno State, þátt í Anuenue mótinu á Hawaii.

Helga Kristín er í 88. sæti e. 2. keppnisdag; er búin að spila á samtals 31 yfir pari, 175 höggum (86 89).

Í liðakeppninni er University of Albany í 15. sæti.

Mótið stendur dagana 27.-29. mars 2017 og lýkur í kvöld.

Sjá má stöðuna í Anuenue mótinu með því að SMELLA HÉR: