Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2017 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Rúnar og Minnesota luku leik í 12. sæti á Valspar mótinu

Rúnar Arnórsson, GK og lið hans í bandaríska háskólagolfinu Minnesota State, tóku þátt í móti í Flórída, sem nefnist Valspar Collegiate Invitational.

Mótið stóð dagana 19.-21. mars 2017 og lauk því í gær – Þátttakendur voru 78 frá 14 háskólum.

Rúnar lauk keppni T-40 í einstaklingskeppninni en hann lék samtals á 9 yfir pari, 222 höggum (70 74 78).

Í liðakeppninni varð Minnesota í 12. sæti.

Fylgjast má með Rúnari og Minnesota State með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Rúnars og félaga er 8. apríl n.k. í New Jersey, en gestgjafi er Princeton háskóli.