Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2017 | 00:01

LPGA: Ólafía Þórunn á -3 e. 1. dag í Phoenix

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR tekur sem stendur þátt í 3. LPGA móti sínu og ekkert lát er á góðu gengi henni þar.

Hún er að keppa við alla bestu kvenkylfinga heims en í mótinu er m.a. nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Lydia Ko.

Ólafía lék 1. hring á 3 undir pari, 69 höggum; fékk 1 örn, 2 fugla, 14 pör og 1 skolla.

Ólafía deilir 46. sætinu með 22 öðrum kylfingum þ.á.m. Azahara Muñoz, Natalie Gulbis (sem Ólafía lék hring með á Bahamas) og Brooke Henderson.

Í efsta sæti eftir 1. dag er hópur 4 kylfinga sem allar léku á 8 undir pari, 64 höggum; Ariya Jutanugarn frá Thaílandi, In Gee Chun frá S-Kóreu og Sandra Changkija og Stacy Lewis frá Bandaríkjunum.

Sjá má stöðuna á Bank of Hope Founders Cup með því að SMELLA HÉR: