Haraldur Franklín Magnús Afmæliskylfingur dagsins: Haraldur Franklín Magnús – 16. mars 2017
Það er Haraldur Franklín Magnús, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Haraldur fæddist 16. mars 1991 og á því 26 ára afmæli í dag.
Hann hóf 2011 keppnistímabilið á að sigra glæsilega Opnunarmót GR, 15. maí 2011 á 67 höggum! Um sumarið spilaði Haraldur Franklín á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri. Hann sigraði m.a. á Símamóti mótaraðarinnar á Hvaleyrinni, í Hafnarfirði, 26. júní 2011.
Eins var Haraldur Franklín í sigursveit GR í sveitakeppni GSÍ 2011 og tók í kjölfarið þátt í Evrópumóti golfklúbba í National Golf Club, Antalya í Tyrklandi, í október 2011 Sveit GR hafnaði í 15. sæti og lék Haraldur Franklín best í sveit GR.
Sumarið, 2012, varð Haraldur Franklín bæði Íslandsmeistari í holukeppni og höggleik! …. sá fyrsti úr röðum GR til að vinna Íslandsmeistara-titilinn í höggleik í 27 ár!!
Jafnframt var Haraldur Franklín ásamt þeim Axel Bóassyni, GK og Rúnari Arnórssyni, GK í liði Íslands á heimsmóti áhugamanna (Eisenhower Trophy) nú í október 2012, en liðið hafnaði í 27. sæti og var enn á ný spilað í Antalya í Tyrklandi.
Árin 2013 og 2014 spilaði Haraldur Franklín á Eimskipsmótaröðinni og sigraði m.a. á Securitas-mótinu úti í Vestmannaeyjum.
Haraldur Franklín var við nám í Louisiana Lafayette háskólanum, þar sem hann spilarðimeð golfliði skólans, The Raging Cajuns. Þar náði hann m.a. þeim glæsilega árangri að sigra í einstaklingskeppni á Border Olympics háskólamótinu í Texas – Sjá grein Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:
Nú upp á síðkastið hefir Haraldur Franklín verið að gera góða hluti á Nordic Golf mótaröðinni – Sjá m.a. frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:
Sjá má gamalt viðtal Golf 1 við Harald Franklín með því að SMELLA HÉR: … og komast má á facebook síðu Haraldar til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Haraldur Franklín Magnús (26 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Lucy Barnes Brown, f. 16. mars 1859 (Vann fyrsta US Women´s Amateur); Richard Tufts, f. 16. mars 1896; Hollis Stacy, 16. mars 1954 (63 árs); Vincent Tshabalala, 16. mars 1943 (74 ára); Guðný Ævarsdóttir, 16. mars 1963 (54 ára); Sigga Sif Sævarsdóttir, 16. mars 1968 (49 ára); Simon Yates, 16. mars 1970 (47 ára); Joakim Bäckström, 16. mars 1978 (39 ára); Bud Cauley, 16. mars 1990 (27 ára), Beau Hossler, 16. mars 1995 (22 ára – spilar á PGA Tour)… og … Anna Sigriður Magnúsdóttir, 16. mars
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
