Golflið Elon með afmælisbarnið í miðju
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2017 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Gunnhildur og Elon í 7. sæti e. 1. dag River Landing mótsins

Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Elon, taka þátt í River Landing Classic mótinu, sem fram fer í Wallace, N-Karólínu, dagana 9.-10. mars 2017.

Þátttakendur eru 74 frá 12 háskólum.

Gunnhildur lék fyrstu tvo hringina í gær á samtals 153 höggum (80 73) og er T-38 af 74 keppendum.

Í liðakeppninni er Elon í 7. sæti. Í dag verður lokahringurinn leikinn.

Fylgjast má með gengi Gunnhildar og Elon með því að SMELLA HÉR: