Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2017 | 07:00

Golfreglur: Stefnt að einföldun!

Tillögur að reglubreytingum hafa verið lagðar fram hjá R&A í Skotlandi og USGA í Bandaríkjunum. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi í ársbyrjun 2019. Margar áhugaverðar tillögur eru að finna á þessum lista -og flestar miða að því að einfalda hlutina fyrir kylfinga.

Helstu hugmyndir um breytingar eru eftirfarandi:

Bolti hreyfist við leit. Ef bolti hreyfist við leit að honum er það vítalaust og boltinn er lagður aftur á fyrri stað. Ef sá staður er ekki þekktur er boltinn lagður á áætlaðan stað.

Bolti hreyfist á flöt. Ef leikmaður veldur því af slysni að bolti hreyfist á flöt er það vítalaust og boltinn er lagður aftur á fyrri stað. Þessi regla hefur þegar verið innleidd á þann hátt að klúbbar og mótsstjórnir geta sett staðarreglu í þessa veru.
Viðmið við ákvörðun um ástæðu þess að bolti hreyfðist. Í núverandi reglum telst leikmaður hafa valdið hreyfingu bolta ef meiri líkur en minni eru á að hann hafi valdið hreyfingunni. Lagt er til að leikmaður teljist hafa valdið hreyfingunni er það er vitað eða nánast öruggt að hann hafi valdið hreyfingunni (a.m.k. 95% vissa).

Bolti óvart sveigður úr leið. Ef bolti lendir óvart í leikmanninum, útbúnaði hans, kylfubera, einhverjum sem gætir flaggstangarinnar fyrir leikmanninn eða í flaggstönginni er það vítalaust.

Bolti látinn falla. Ekki þarf lengur að láta boltann falla úr axlarhæð, eina skilyrðið er að boltanum sé haldið á lofti og að hann snerti ekki gras eða annan gróður þegar hann er látinn falla.

Afmörkun svæðis þar sem láta á bolta falla. Í stað einnar eða tveggja kylfulengda er miðað við 20 og 80 tommur.

Leitartími. Leitartími styttist úr 5 mínútum í 3 mínútur.

Sokkinn bolti. Lausn er veitt frá sokknum bolta hvar sem er nema í sandi.

Skipt um bolta. Skipta má um bolta hvenær sem tekið er víti eða frílausn, t.d. frá óhreyfanlegum hindrunum.

Púttað í flaggstöngina. Það er vítalaust þótt púttað sé af flötinni og boltinn hittir flaggstöngina í holunni.
Skemmdir á flötum. Í stað þess að einungis megi lagfæra boltaför og gamla holutappa á flötum má lagfæra svo til allar skemmdir, s.s. takkför.

Að snerta púttlínuna. Það er vítalaust þótt leikmaður snerti púttlínuna, svo framarlega sem það bæti ekki aðstæður fyrir næsta högg.

Bolti hreyfist eftir að honum hefur verið lyft og hann lagður aftur. Ef bolti hreyfist eftir að lega hans hefur verið merkt, honum lyft og hann lagður aftur á alltaf að leggja hann aftur á fyrri stað, jafnvel þótt hann hafi fokið.

Kylfuberi merkir og lyftir bolta á flöt. Ekki er lengur víti þótt kylfuberi merkir og lyftir bolta leikmannsins á flöt, án sérstakra fyrimæla leikmannsins.

Vítasvæði. Mótsstjórnir mega merkja hvaða svæði sem er sem “vítasvæði” með gulum eða rauðum stikum, svo sem skóg, hraun o.s.frv.

Lausn “hinum megin” í rauðmerktum svæðum. Ekki er lengur leyft að taka víti “hinum megin” við torfæruna í rauðmerktum svæðum, nema mótsstjórn setji staðarreglu í þá veru.

Takmarkanir í “vítasvæðum”. Ekki er lengur bannað að snerta eða hreyfa lausung í “vítasvæðum”, s.s. vatnstorfærum.

Takmarkanir í glompum. Ekki er lengur bannað að snerta eða hreyfa lausung í glompum.

Sandur snertur í glompu. Minni takmarkanir eru á því að hreyfa við sandi í glompu þegar boltinn er í glompunni.

Bolti dæmdur ósláanlegur í glompu. Ný regla leyfir leikmanni að taka víti upp úr glompu, gegn tveimur vítahöggum.

Skemmdar kylfur. Nota má kylfur sem hafa skemmst við leik, hvernig svo sem þær skemmdust.

Fjarlægðarmælar. Ekki þarf lengur að setja staðarreglu til að leyfa notkun fjarlægðarmæla. Mótsstjórn getur á hinn bóginn bannað notkun fjarlægðarmæla, með staðarreglu.

Nýtt leikform. Kynnt er nýtt leikform, „hámarksskor“ þar sem sett er hámarksskor á holu og leikmenn hætta leik á holu þegar því hámarki er náð.

Heimild: GSÍ

Samantekt: Hörður Geirsson.