Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Stefania Avanzo (60/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.

Nú erum við að kynna þær sem deildu 7. sætinu og hlutu fullan spilarétt á LET, en báðar léku þær á samtals 13 undir pari, 347 höggum, hvor.

Þetta voru þær Stefania Avanzo frá Ítalíu (73 67 69 69 69) og Amandeep Drall frá Indlandi (66 68 71 72 70).

Í gær var Amandeep Drall kynnt og í dag er röðin komin að Stefaníu Avanzo.

Stefanía Avanzo fæddist í Trieste á Ítalíu, 14. september 1993 og er því 23 ára.

Hún býr í Feneyjum. Golfklúbburinn sem hún er í á Ítalíu er Villa Condulmer.

Stefanía segir foreldra sína og þjálfarann Enrico Trentin hafa haft mest áhrif á golfið sitt.

Stefanía gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar 2014.

Uppáhaldsgolfvöll sinn segir Stefanía vera golfvöll Jumeirah golfklúbbsins í Dubaí.

Uppáhaldáhugamál Stefaníu fyrir utan golfið eru ljósmyndun, lestur góðra bóka, tennis og skíði.