Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Amandeep Drall (59/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.

Nú erum við að kynna þær sem deildu 7. sætinu og hlutu fullan spilarétt á LET, en báðar léku þær á samtals 13 undir pari, 347 höggum, hvor.

Þetta voru þær Stefania Avanzo frá Ítalíu (73 67 69 69 69) og Amandeep Drall frá Indlandi (66 68 71 72 70).

Í dag verður Amandeep Drall kynnt.

Amandeep Drall fæddist í Patiala, á Indlandi 14. september 1992 og er því 24 ára.

Hún býr í Chandigarh á Indlandi.

Amandeep segir foreldra sína hafa haft mest áhrif á golfið sitt og hún gerðist atvinnumaður í golfi 6. janúar 2015.

Helstu áhugamál utan golfsins hjá Amadeep eru að teikna, mála og lesa góðar bækur.

Nú er Drall komin með fullan keppnisrétt á LET eins og svo margar góðar indverskar á undan henni!!!