Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2017 | 08:00

Dýr á golfvöllum: Krókódíll æðir yfir golfvöll m/stóran fisk í kjaftinum – Myndskeið

Nú á dögunum náðist myndskeið af krókódíl sem labbaði sig yfir golfvöll í Flórída með risafisk í kjaftinum.

Þetta var í Seven Springs Golf and Country Club sem er nálægt Tampa, í Flórída.

Sú sem náði króksa á filmu var fréttamaðu fox13news.com, Norma Respess, en hún sagðist aldrei hafa séð annað eins.

Hún sagði m.a.: „I’ve never seen that before. Look at that! What a sight. He’s holding on to that fish. Amazing.“

(Lausleg þýðing: „Ég hef aldrei séð þetta áður. Sjáið þetta! Þvílík sýn. Hann heldur á fiskinum. Ótrúlegt!!!“)

Sjá má myndskeiðið af króksa að labba yfir golfvöllinn með fiskinn í kjaftinum með því að SMELLA HÉR: