Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2017 | 12:00

Nordic Golf League: Haraldur Franklín frábær!!!

Fjórir íslenskir kylfingar taka þátt í Lumine Lakes Open sem fram fer á Spáni, en mótið er hluti af Nordic Golf League. mótaröðinni.

Þetta eru þeir Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Haraldur Franklín Magnús, GR.

Eftir 2 leikna hringi er Haraldur Franklín á besta skori Íslendinganna og T-14.  Hann er búin að spila á samtals 3 undir pari, 140 höggum (72 68).

Á næstbesta skori íslensku keppendanna er Andri Þór Björnsson. Hann er T-38 og búinn að spila á 1 yfir pari, 144 höggum (73 71).

Guðmundur Ágúst og Axel náðu ekki niðurskurði, en aðeins 54 efstu náðu niðurskurði þ.e. allir sem jafnir voru í 45. sætinu.

Lokahringurinn verður spilaður á morgun.

Sjá má stöðuna á Lumine Lakes Open eftir 2. dag með því að SMELLA HÉR: