Natalia Escuriola Matinez Nýju stúlkurnar á LET: Natalia Escuriola Martinez (54/66)
Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.
Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.
Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.
Nú erum við að kynna þær sem höfnuðu í 12. sæti og hlutu fullan spilarétt á LET; en það voru 4 stúlkur sem allar léku á 7 undir pari, 353 höggum, hver.
Þetta eru þær Ariane Provot frá Frakklandi (70 74 70 70 69); Inci Mehmet frá Englandi (71 72 73 67 70); Natalia Escuriola Martinez frá Spáni (66 73 68 75 71) og Lauren Horseford frá Englandi.
Ariane Provot og Inci Mehmet hafa þegar verið kynntar og í dag er það hin spænska Natalia Escuriola Martinez.
Natalia Escuriola Martinez fæddist í Castelleon á Spáni, 1. ágúst 1994 og er því 22 ára.
Natalia byrjaði í golfi 5.
Hún segir helsta áhrifavaldinn í golfi sínu hafa verið pabba sinn og frænda.
Uppáhaldskylfingur Natalíu er Rory og uppáhaldsgolfvöllurinn er Sotogrande.
Í spænska boltanum heldur Natalia með Villareal.
Natalia gerðist atvinnumaður í golfi 7. september 2015.
Uppáhaldsáhugamál er að vera með fjölskyldu sinni og slakar á við lestur bóka og með því að hlusta á tónlist.
Helsti árangurinn á golfsviðinu hingað til er að vera fulltrúi Spánar 2014 á Ladies European Team Championships.
Natalia varð í 2. sæti á stigalista LET Access 2015 og hlaut þannig kortið sitt og fulls spilaréttindi á LET keppnistímabilið 2016. Hún hóf árið 2015 sem áhugamaður en ákvað síðan að gerast atvinnuaður síðustu tvö mótin. Natalia hefir sigrað tvívegis á LET Access; fyrri sigurinn kom á CitizenGuard LETAS Trophy sem áhugamaður og seinni sigurinn á lokamóti LET Access 2015, WPGA International Challenge, en það er eini sigur henni hingað til sem atvinnumanns. Natalia náði 4 topp-3 áröngrum á keppnistímabilinu. Hún sigraði líka á DISA Spanish professional tournament.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
