Nýju stúlkurnar á LET 2017: Andrea Wong (49/66)
Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.
Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.
Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.
Nú erum við að kynna þær sem höfnuðu í 18. sæti og hlutu fullan spilarétt á LET; en það voru 3 stúlkur sem allar léku á 5 undir pari, 355 höggum, hver.
Þetta eru þær Camille Chevalier frá Frakklandi (75 71 70 68 71); Andrea Wong frá Bandaríkjunum (70 73 63 73 76) og Vani Kapoor frá Indlandi (69 74 69 67 76)
Hér áður hafa Vani Kapoor frá Indlandi og Camille Chevalier frá Frakklandi verið kynntar og í dag er það Andrea Wong frá Bandaríkjunum.
Andrea Wong fæddist í San Francisco, Bandaríkjunum, 14. nóvember 1994 og er því 22 ára.
Foreldrar hennar eru Hoffman Wong og May Tang og Andrea á tvíburasystur Alexöndru sem spilaði með golfliði Princeton.
Meðal hápunkta á ferli Andreu eru sigur á NCGA Women’s Amateur.
Andrea var í bandaríska háskólagolfinu og lék með liði UC Davies Aggies.
Sjá má um afrek Andreu þar með því að SMELLA HÉR:
Hun útskrifaðist frá UC Davies með gráðu í bandarískri sögu
Áhugamál Andreu utan golfsins eru að ferðast, matur og ræktin.
Uppáhaldsgolfvöllur Andreu er Pebble Beach Golf Links. og uppáhaldsíþróttamaður hennar Jeremy Lin.
Í viðtali sagðist hún vonast til þess að heimsækja Bora Bora einn góðan veðurdag.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
