Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Jane Seymour og Jóhann J Ingólfsson – 15. febrúar 2017

Það eru Jóhann J. Ingólfsson og  leikkonan Jane Seymour (sem heitir réttu nafni Joyce Penelope Wilhelmina Frankenberg) sem eru afmæliskylfingur dagsins.

Jóhann fæddist 15. febrúar 1956 og á því 60 ára stórafmæli í dag.

Jane Seymour fæddist 15. febrúar 1951 og er því 66 ára í dag.

Jane Seymour

Jane Seymour

Jane er fjórgift og á 4 börn: Katherine (1982) og Sean Flynn (1986) með eiginmanni nr. 3, David Flynn. Hún var 43 ára þegar hún reyndi aftur að eignast að eignast barn með eiginmanni nr. 4, James Keach og eftir 2 fósturlát eignaðist hún loks tvíburana Kris og John 1995, næstum 45 ára.

Strákana sína nefndi hún eftir fjölskylduvinunum Christopher Reeves og Johnny Cash. Hún var Bond stúlkan árið 1973 í Bond-myndinni Live and Let Die og lék í sjónvarpsmyndaröðinni Dr. Quinn Medicine Woman. Af fjölmörgum hlutverkum, sem hún hefir leikið, var hún mjög eftirminnileg í hlutverki Marguerite St. Just í myndinni Rauða Akurliljan (ens.: Scarlett Pimpernel).

Jane býr í dag með manni sínum James Keach og tvíburunum í Kaliforníu þar sem þau eru félagar í Sherwood Country Club í Thousand Oaks, þar sem er Jack Nicklaus hannaður, frábær golfvöllur.

Helsta markmið Jane er að „breaka 90.” Hún segist ekki hafa skrifa niður skorið eftir hefðbundnum hætti þegar hún byrjaði í golfi þ.e. höggafjölda eða punkta – hún gaf sér einfaldlega stjörnu þegar hún sló gott högg og taldi stjörnurnar í lok hrings. Smám saman fór stjörnunum fjölgandi. Í spili sínu leggur hún mikla áherslu á að chippa og pútta vel. Hún sagði eitt sinn í viðtali: „Ef það væri ekki svona mikið um að vera í lífi mínu væri ég eflaust betri kylfingur.”

Loks má sjá afmæliskylfinginn, Jane Seymour, dansa með stjörnunum með því að SMELLA HÉR:

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Johann J Ingolfsson (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); Guðmundur Smári Valsson 15. febrúar 1972 (45 ára); Lee Anne Pace 15. febrúar 1981 (36 ára) og Tim Stewart, 15. febrúar 1985 (32 ára); Eyþór Hrafnar Ketilsson, GA, 15. febrúar 1996 (21 árs); Þórdís Rögnvaldsdóttir, 15. febrúar 1996 (21 árs) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum sem og öllum öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is