Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2017 | 05:00

LPGA: Ólafía Þórunn á 72 e. 1. dag í Ástralíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hóf leik kl. 20:41 að íslenskum tíma, 15. febrúar 2017 á ISPS Handa mótinu sem er hluti af LPGA mótaröðinni. Fyrsti keppnisdagurinn af alls fjórum er fimmtudaginn 16. febrúar. Klukkan var 7:11 að morgni að staðartíma í Adelaide. Staðartími á mótsstaðnum er 10 ½ klukkustundum á undan þeim íslenska og hefst því mótið á miðvikudagskvöld hér á landi.

Ólafía Þórunn er í ráshóp með Belen Mozo frá Spáni og Celine Herbin frá Frakklandi í ráshóp fyrstu tvo keppnisdagana. Þær hófu leik á 10. teig á fyrsta hringnum. Mozo hefur verið á LPGA frá árinu 2011 og Herbin hefur leikið á LPGA frá árinu 2015. Mozo er í 162. sæti á heimslistanum og Herbin er í 224. sæti á meðan Ólafía er í sæti nr. 607 á heimslistanum.  Mozo hefir m.a. helst unnið sér það til frægðar að hafa setið nakin fyrir í Body Issue  fyrir 6 árum síðan (2011) – sjá eldri grein Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR: Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Celine Herbin með því að SMELLA HÉR:

Ólafía Þórunn lauk 1. hring á 1 undir pari 72 höggum; fékk 3 fugla og 4 skolla.

Keppt er á The Royal Adelaide í Suður-Ástralíu en par vallarins er 73 högg. Völlurinn er 6,681 stikur eða um 6,100 metrar að lengd.

Heildarverðlaunféð á mótinu er 1,3 milljónir dalir eða um 160 milljónir kr. Verðlaunféð er það sama og á Pure Silk mótinu sem var fyrsta mót ársins 2017 og fór fram á Bahamas. Þetta er í sjötta sinn sem ISPS-Handa mótið fer fram á þessum stað.

Ólafía Þórunn endaði í 69.-72. sæti á fyrsta móti ársins á Bahamas og fékk hún 2.800 dollara í verðlaunafé eða sem nemur 330.000 kr.

Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Sigurvegarar ISPS Handa:

2016
Haru Nomura, Japan.
69 – 68 – 70 – 65 = 272 (-16)

2015
Lydia Ko, Nýja-Sjáland.
70 – 70 – 72 – 71 = 283 (-9)

2014
Karrie Webb, Nýja-Sjáland.
71 – 69 – 68 – 68 = 276 (-12)

2013
Jiyai Shin, Suður-Kórea.
65 – 67 – 70 – 72 = 274 (-18)

2012
Jessica Korda, Bandaríkin.
72 – 70 – 73 – 74 = 289 (-3)