Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Neha Tripathi (39/66)

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Lucrezia Colombotto Rosso (38/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Nú erum við að byrja að kynna þær heppnu, sem höfnuðu í 21. sæti og hlutu fullan spilarétt á LET; en það voru 4 stúlkur sem allar léku á 3 undir pari, 357 höggum, hver.

Þetta eru þær Neha Tripathi frá Indlandi (72 69 69 76 75); Luna Sobron frá Spáni (73 74 69 68 73); Elia Folch frá Spáni (75 71 72 70 69) og Yan Liu frá Kína (69 73 70 69 76).

Í dag verður Neha Tripathi frá Indlandi kynnt.

Neha Tripathi fæddist 20. febrúar 1992 í Kolkata á Indlandi og er því 24 ára. Neha byrjaði að spila golf 11 ára.

Hún býr í Gurgaon í Indlandi. Neha segir föður sinn hafa haft mest áhrif á golfið sitt.

Neha segir Henrik Stenson og Jordan Spieth vera uppáhaldskylfinga sína og Royal Calcutta Golf Club hafa uppáhaldsgolfvöll sinn.

Neha gerðist atvinnumaður í golfi 8. september 2010, þá 18 ára.

Hún elskar að horfa á tennis en Rafael Nadal er uppáhaldskylfingur hennar og eins að hlusta á tónlist og vera með vinum sínum.