Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Lucrezia Colombotto Rosso (38/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Nú erum við að byrja að kynna þær heppnu, sem höfnuðu í 29. sætinu og rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu fullan spilarétt á LET; þær voru báðar á samtals 2 undir pari, 358 höggum, hver.

Þetta eru þær Lucrezia Colombotto Rosso ( 71 71 72 71 73) frá Ítalíu og Eva Gilly (70 76 69 72 71) frá Frakklandi.

Búið er að kynna Gilly og í dag verður Rosso kynnt.

Lucrezia Colombotto Rosso fæddist í Tórínó á Ítalíu, 7. mars 1996 og er því 20 ára.

Lucrezia býr í Mónakó og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á golfferil sinn, en uppáhaldskylfingur hennar er Tiger Woods.

Uppáhaldsgolfvöllur Lucreziu er Circolo Golf í Tórínó á Ítalíu.

Lucrezia gerðist atvinnumaður í golfi 1. ágúst 2016.

Helstu áhugamál Lucreziu utan golfsins eru íþóttir, lestur góðra bóka; að sósíalisera og að verja tíma með fjölskyldunni.