Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Eva Gilly (37/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Nú erum við að byrja að kynna þær heppnu, sem höfnuðu í 29. sætinu og rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu fullan spilarétt á LET; þær voru báðar á samtals 2 undir pari, 358 höggum, hver.

Þetta eru þær Lucrezia Colombotto Rosso ( 71 71 72 71 73) frá Ítalíu og Eva Gilly (70 76 69 72 71)   frá Frakklandi.

Byrjað verður á því að kynna Gilly í dag.

Eva Gilly fæddist 3. júní 1998 í Le Chesnay í Frakklandi og er því aðeins 18 ára.

Hún býr í Vaucresson í Frakklandi. Uppáhaldsgolfvöllur er Dinard völlurinn í Frakklandi og uppáhaldskylfingur Jason Day.

Uppáhaldslið Gilly í franska boltanum er Paris St. Germain.

Þrátt fyrir ungan aldur gerðist Gilly atvinnumaður í golfi 26. október 2015.

…. og hún er þegar komin með fullan spilarétt á LET!!!

Helstu áhugamál Gilly utan golfsins eru íþróttir, matreiðsla, tónlist og ljósmyndun.