Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2017 | 08:00

Sjáið nýjustu golffatalínu Bill Murray

Leikarinn Bill Murray, sést oft á AT&T Pro-Am, en það mót ásamt aðalkeppninni, er mót vikunnar á PGA Tour.

Bill hefir vakið athygli fyrir klæðaburð sinn en hann klæðist oftar en ekki fatnaði og golffatalínu bróður síns William Murray Golf Cubs polo.

Wiiliam Murrray golf polo bolur

Wiiliam Murrray golf polo bolur

Nú hafa Bill og bræður hans sett á markað vorgolffatalínu, eftir að haustlína þeirra bræðra seldist upp í einni svipann.

Murray bræður birtu nokkrar myndir (meðfylgjandi) af því sem þeir bjóða upp á.

Það sem þeir munu einkum vera með til sölu eru golfder, stuttbuxur, mynstraða golfboli- og skyrtur og golfjakka.

Golfstuttbuxur úr vorfatalínu Murray bræðra

Golfstuttbuxur úr vorfatalínu Murray bræðra

Einn golfbolurinn byggir t.a.m. á fatnaði sem karakter Bills var í, í myndinni “Lost in Translation” í mjög svo eftirminnilegrum kareoke parti myndarinnar.

Hver hefði talið að það þessi felulitabúningur með nokkrum hrífum á minnti svona mikið á flatir og bönkera? Þetta var ein af hugmyndum Bill,“ sagði yngri bróðir Bill, Joel Murray.

Ein golfskyrtan lítur út fyrir að vera með hawaii munstri

Ein golfskyrtan lítur út fyrir að vera með hawaii munstri

Enn einn golfbolurinn sem Joel nefnir „öskubuskusaga“ (ens:  “A Cinderella Story”), minnir þó nokkuð mikið á fatnað í Caddyshack. Þeta er bolur sem er svipaður einum þeirra sem markaðssettir voru sl. haust en með bjartara mynstri, sem næstum minnir á Hawaii mynstur.

Hringirnir í sumum mynstranna á golfbolunum eru golfboltar og önnur mynstur m.a. hrífur.

Það er svolítið verið að heiðra golfvallarstarfsmenn með þessari línu,“ sagði Murray.