Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Amy Anderson (43/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Næst  verða kynntar þær sem deildu 12. sætinu og hlutu kortið sitt og FULLAN keppnisrétt á LPGA kynntar – en þær léku á samtals 6 undir pari, 354 höggum.

Þetta er þær Amy Anderson ( 71 71 70 70 72) og Laetitia Beck (76 66 71 68 73).

Laetitia Beck  hefir þegar verið kynnt þannig að í kvöld er það Amy Anderson

Amy Anderson fæddist í Oxbow, Norður-Dakóta, 10. júlí 1992 og er því 24 ára.

Hún er dóttir Mark og Twylu Anderson og á einn bróður Nathan Anderson, sem keppti í karlaliði North Dakota State University í golfi.

Amy Anderson var kennt heima allt í gegnum menntaskólann áður en hún hóf nám, 17 ára,  í North Dakota State University.  Á háskólaárum sínum sigraði Amy 20 sinnum í einstaklingshluta móta, sem er met. Hún sló m.a. við eldra meti Juli Inkster upp á sigur í 17 mótum sem einstaklingur í bandaríska háskólagolfinu.

Sjá má afrek Amy í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: 

Eins er Amy góður námsmaður en hún var með 3,97 í meðaleinkunn í háskóla, þar sem hún lagði stund á endurskoðun (það besta í Bandaríkjunum, sem gefið er, er 4) og hlaut hún m.a.  the Elite 89 Award.

Sem áhugamaður vann Amy mörg mót lókalt en einnig á svæðisbundnum eða ríkjamótum, það eftirtektarverðasta e.t.v. the U.S. Girl’s Junior í Bedminster, New Jersey, sem hún vann 2009.

Amy var m.a. í Curtis Cup liði Bandaríkjanna 2012.

Hún komst strax inn á LPGA í fyrstu tilraun sinni 2013 og var nýliðaár hennar 2014. Besti árangurinn til þessa er T-7 árangur í LPGA Lotte Championship í Hawaii 2014. Besti árangurinn í risamótum til dagsins í dag er T-52 árangur í US Women´s Open 2016.