Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Angella Then (31/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Nú erum við að kynna þær óheppnu, sem höfnuðu í 34. sætinu og voru við það að hljóta fullan spilarétt á LET, en leika því miður allar á LET Access og hafa aðeins takmarkaðan spilarétt; þær voru allar á samtals sléttu pari, 360 höggum, hver.

Þetta eru þær: Elina Nummenpaa frá Finnlandi (68 71 72 74, 75) spænski kylfingurinn Silvia Bañon (70 75 71 69 75), franski kylfingurinn Ines Lescudier (69 76 70 72 73) og Charlotte Thompson (79 67 69 72 73) og Meghan Maclaren frá Englandi (73 67 73 75 72); Angella Then frá Bandaríkjunum (75 73 71 69 72) og Nina Muehl ( 72 71 72 69 76)

Elina Nummenpää frá Finnlandi, Nina Muehl frá Austurríki, Silvia Bañon frá Spáni og Ines Lescudier frá Frakklandi hafa þegar verið kynntar og í dag er það Angella Then frá Frakklandi.

Angella Then fæddist 8. ágúst 1988 og er því 28 ára. Hún er dóttir Andre Then og Maya Dewi.

Angella spilaði golf með golfliði  Los Osos High School og á eina eldri systur sem spilar í bandaríska háskólagolfinu, Gabriellu, sem spilar golf með golfliði University of Southern California.

Komast má á facebook síðu Angellu til að fræðast nánar um hana með því að SMELLA HÉR: